Draumar og ásetningur – Að skapa líf sitt 2023

Draumar og ásetningur – Að skapa líf sitt 2023

Í byrjun árs er gott að staldra við og horfa annars vegar inná við; spyrja okkur sjálf spurninga eins og: Hvað veitir mér hamingju? Hverju þjónar þessi ávani? -Og hins vegar líta heilt yfir líf okkar og velta fyrir okkur hverju við viljum halda áfram og hverju við viljum breyta.

Hvað vilt þú sjá rætast á nýju ári í þínu lífi? Ert þú skaparinn í þínu lífið? Hvernig skapar þú líf þitt?
Nú, þriðja árið í röð, bjóðum við upp á Drauma og ásetning – notalega kvöldstund með kakóbolla, ásetningi og djúpslökun.

Við komum saman og skrifum niður hugsanir, drauma og þrár og innsiglum vinnuna með ilmandi helgum kakóbolla frá Gvatemala og gong slökun. Kakóið hjálpar okkur að gefa eftir og slaka á og gongið hjálpar okkur að losa okkur við það sem þjónar okkur ekki lengur.

Stundin er 2 klst.

Verð: 4000 kr.

 

 

4.000 kr.

4 á lager