
Endurnærandi Retreat í Tungulendingu
Endurnærandi sjálfsumhyggja í Tungulendingu á Tjörnesi, með Huld Hafliðadóttur jóga- og hugleiðslukennara og stofnanda Spirit North, dagana 15. – 17. september næstkomandi.
Langar þig að eiga helgi bara fyrir þig? Í einfaldleika, hvíld og sjálfsumhyggju? Í einstakri náttúru, friði og ró? Þá gæti þetta verið fyrir þig!
Endurnærandi sjálfsumhyggja
Kvenna-Retreat
Dagskrá hefst kl. 17:00 föstudaginn 15. september og lýkur kl. 14:00 sunnudaginn 17. september.
Má bjóða þér að koma og njóta endurnærandi sjálfsumhyggju helgina 15. – 17. semptember í Tungulendingu á Tjörnesi?
Retreat fyrir konur sem vilja gefa sér tíma og rými til að dvelja með sjálfum sér, tengja inn á við, tengja við náttúruna og njóta samveru annarra kvenna á sömu vegferð.
Staðurinn einn og sér er algjör töfrastaður; annar heimur sem færir kyrrð og frið inn í hverja frumu.
Dagskráin er fjölbreytt og samanstendur m.a. af:
🧘♀Jóga & hugleiðslu
🪶Hvíld & slökun
🌊Náttúrutengingu
🥗Góðri næringu
🙏Persónubundnum ásetningi
🔮Kakó seremóníu
📿Kvennahring
o.fl.
Við njótum hollrar og góðrar næringar og njótum þess að hvílast án áreitis við hafið.
Lagt er upp með að 2 konur deili herbergi, en hægt að vera ein í herbergi gegn aukagjaldi.
Innifalið í verði er gisting, allar máltíðir, seremóníukakó, glaðningur við komu, öll dagskrá og kennsla.
Dagskrárdrög:
Föstudagur 15. september
Kl. 17:00 – 19:00
Konur mæta og koma sér fyrir í herbergjum.
Léttur kvöldverður og glaðningur þegar komið er í hús.
Kl. 20:30
Kynning, hugleiðsluhringur og ásetningur fyrir helgina.
21:30 Jóga nidra
Laugardagur 16. september
9:00 Jóga og morgunhugleiðsla
9:45 Morgunverður
10:30 Náttúruganga og núvitund
12:00 Hádegismatur
Eftir hádegishlé er frjáls tími þar sem hvatt er til léttrar göngu, dagbókarskrifa eða lesturs. Fáir staðir veita jafn mikla og góða orku og rætur hafsins við Tungulendingu. Hvort sem er í logni eða roki, hleðslan og endurnæringin er mögnuð!
15:00 Verkefnavinna og hugleiðsla fyrir sjálfstengingu
18:00 Kvöldmatur
20:00 Laugardagskvöld: Kakóhugleiðsla og kvennahringur með tónheilun. Ef veður leyfir kvekjum við lítinn varðeld og nýtum okkur umbreytandi krafta eldsins.
Sunnudagur 17. september
9:00 Morgunhugleiðsla
9:45 Morgunverður
10:30 Verkefnavinna fyrir sjálfsumhyggju og kvennahringur
12:00 Hádegismatur
Dagskrárlok áætluð á sunnudag kl. 14:00
Innifalið í verði er gisting, allar máltíðir, glaðningur við komu, kakó og öll dagskrá og kennsla.
Nánar um kennarann:
Huld Hafliðadóttir er jógakennari og gongspilari og hefur kennt jóga á Húsavík og í nærsveitum sl. 10 ár, í hvers kyns formi. Allt frá jóga fyrir leikskólabörn yfir í hádegisjóga á skrifstofu sveitarfélagsins.
Undanfarin misseri hefur Huld lagt áherslu á hugleiðslu og slökun auk þess að vera mjög umhugað um að bjóða rými fyrir sjálfsmildi, sjálfsvitund og meðvitund og stofnaði hún Spirit North í þeim tilgangi árið 2018. Hún hefur leitt fjölda viðburða fyrir konur og leggur áherslu á að fólk gefi sér tíma og rými til einfaldlega til að vera og tengja inn á við, í heimi sem sífellt kallar á tengingu út á við.
Verð:
kr. 65.000*
*Velkomið er að skipta greiðslum í tvær eða þrjár greiðslur.
65.000 kr.
Ekki til á lager