Velkomin til Spirit North – við erum staðsett á Húsavík
Spirit North er upplifunar konsept með áherslu á jóga, hugleiðslu og náttúrutengingu.
Við bjóðum upp á reglulega jógatíma yfir veturinn, en einnig sérsniðna tíma, námskeið, ferðir og upplifanir – allan ársins hring. Í nágrenninu er að finna fjöldan allan af heilandi gönguleiðum og töfrastöðum fyrir jógaiðkun, kakó hugleiðslu eða gongslökun. Allt eftir því hvað hentar þér.
Við hlökkum til að taka á móti þér!
Jóga og hugleiðsla
Spirit North býður upp á fjölbreytta jóga- og hugleiðslutíma, bæði samkvæmt stundaskrá og sérsniðna.
Hatha, Kundalini, Nidra, Gong slökun, auk Kakó hugleiðslu hafa verið hvað vinsælastir en einnig viðburður eins og gong siglingar og gong í sjóböðunum.
Upplifun
Spirit North býður upp á hvers konar upplifun sem tengist jóga, hugleiðslu eða slökunar iðkun hvort heldur sem er innandyra eða úti í náttúrunni.
Dæmi um þetta eru Gongsigling á Skjálfanda, Gong í Sjóböðunum, Endurnærandi slökunarferð í Flatey á Skjálfanda, Gönguhugleiðsla í nágrenni Húsavíkur, Kakó hugleiðsla og/eða gongspil úti undir berum himni.
Þá bjóðum við einnig upp á sérsniðna upplifun fyrir þig – ekki hika við að heyra í okkur varðandi þína hugmynd!
Spirit North býður upp á retreat, í nálægð við Húsavík, en einnig vonandi á erlendri grundu innan skamms.
Dæmi um retreat í nálægð við Húsavík eru Endurnærandi jóga og hugleiðsluferð í Flatey á Skjálfanda sumrin 2018 – 2022 og Endurnærandi sjálfsumhyggja – KvennaRetreat í Tungulendingu á Tjörnesi haustið 2023.
Þá bjóðum við einnig upp á sérsniðna upplifun fyrir þig – ekki hika við að heyra í okkur varðandi þína hugmynd!
What you seek is seeking you
– Rumi