8 skipta Jóga Nidra námskeið – í Þingeyjarsveit

8 skipta Jóga Nidra námskeið – í Þingeyjarsveit

Þarft þú á slökun og eftirgjöf að halda?
Ert þú uppfull/ur af streitu?
Eða viltu kannski bara gefa þér nærandi gjöf?
Þá gæti þetta námskeið verið fyrir þig.

Jóga Nidra, sem merkir “jógískur svefn” er leidd djúðslökun sem byggir á kerfisbundinni röð líkamsvitundar- og öndunaræfinga. Jóga nidra hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Talið er að um 30 mínútna iðkun af jóga nidra sé á við 4 klst svefn. Í jóga nidra er boðið upp á að setja sér persónulegan ásetning (Sankalpa) sem hjálpar til við að losa um gömul og rótgróin hugsana- og hegðunarmynstur.
Rannsóknir á jóga nidra 
sýna fram á ótvíræðan ávinning, hvað varðar slökun, hugarró en ekki síður ásetning. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á jákvæð áhrif á ýmsa lífeðlisfræðilega og sálfræðilega kvilla eins og svefnleysi, fíkni- og ávanahegðun, langvinna sjúkdóma, verkjameðferðir, meðgöngu, öldrunarsjúkdóma, astma auk hjarta- og æðasjúkdóma (t.d. Satyananda Saraswati 2009).

Jóga nidra er mjög áhrifarík iðkun og það eina sem þú þarft að gera er að hlusta, slaka og gefa eftir.

Nýtt 8 skipta námskeið í Ýdölum, Þingeyjarsveit, hefst mánudaginn 14. október 2024 – síðasti tíminn er 16. desember.
Athugið, ekki eru tímar mánudagana 28. október og 18. nóvember.
Hvenær:
Kennt mánudaga kl. 17:00
Hvar:
Ýdalir íþrótta/samkomuhús
Hve lengi í senn:
Hver tími er um 60 mínútur
Kennari:
Huld Hafliðadóttir
Hvað þarf að hafa með:
Dýnu, teppi og púða – gott að klæðast þægilegum fatnaði. (Ath. ef þú átt ekki dýnu, láttu vita við skráningu)
Kostnaður:
Kr. 22.000 (athugið að mörg stéttarfélög bjóða endurgreiðslu)

22.000 kr.