Endurnærandi Kvenna retreat í Tungulendingu 2025

Endurnærandi Kvenna retreat í Tungulendingu 2025

Mjúk lending: Kyrrð, næring & náttúra – kvenna retreat í Tungulendingu á Tjörnesi 2025, með Huld Hafliðadóttur jóga- og hugleiðslukennara og stofnanda Spirit North, dagana 10. – 12. október næstkomandi.

Langar þig að eiga helgi bara fyrir þig? Í einfaldleika, kyrrð og sjálfsmildi, einstakri náttúru, friði og ró? Þá gæti þetta verið fyrir þig!

Mjúk lending: Kyrrð, næring & náttúra
Kvenna-Retreat

Dagskrá hefst kl. 17:00 föstudaginn 10. október og lýkur kl. 14:00 sunnudaginn 12. október.

Retreat fyrir konur sem vilja gefa sér tíma og rými til að dvelja með sjálfri sér, tengja inn á við, tengja við náttúruna og njóta samveru með öðrum konum á sömu vegferð.

Staðurinn einn og sér er algjör töfrastaður; annar heimur sem færir kyrrð og frið inn í hverja frumu.

Dagskráin er fjölbreytt og samanstendur m.a. af:
🧘‍♀Jóga & hugleiðslu
🪶Hvíld & slökun
🌊Náttúrutengingu
🥗Góðri næringu
🙏Persónubundnum ásetningi
🔮Kakó seremóníu
📿Kvennahring

Við njótum hollrar og góðrar næringar og njótum þess að hvílast án áreitis, við hafið.

Lagt er upp með að 2 konur deili herbergi, en hægt að vera ein í herbergi gegn aukagjaldi.

Innifalið í verði er gisting, allar máltíðir, seremóníukakó, glaðningur við komu, öll dagskrá og kennsla.

Dagskrárdrög:
Föstudagur 10. október
Kl. 17:00 – 19:00
Konur mæta og koma sér fyrir í herbergjum.
Léttur kvöldverður og glaðningur þegar komið er í hús.
Kl. 20:30
Kynning, hugleiðsluhringur og ásetningur fyrir helgina.
21:30 Jóga nidra

Laugardagur 11. október
9:00 Jóga og morgunhugleiðsla
9:45 Morgunverður
10:30 Náttúruganga og tenging við kraft náttúrunnar
12:00 Hádegismatur
Eftir hádegishlé er frjáls tími þar sem hvatt er til léttrar göngu, dagbókarskrifa eða lesturs. Fáir staðir veita jafn mikla og góða orku og rætur hafsins við Tungulendingu. Hvort sem er í logni eða roki, hleðslan og endurnæringin er mögnuð!
15:00 Verkefnavinna og hugleiðsla fyrir sjálfstengingu
18:00 Kvöldmatur
20:00 Laugardagskvöld: Kakóhugleiðsla og kvennahringur með tónheilun. Ef veður leyfir kvekjum við lítinn varðeld og nýtum okkur umbreytandi krafta eldsins.

Sunnudagur 22. september
9:00 Morgunhugleiðsla
9:45 Morgunverður
10:30 Verkefnavinna fyrir sjálfsumhyggju og kvennahringur
12:00 Hádegismatur

Dagskrárlok áætluð á sunnudag kl. 14:00

Innifalið í verði er gisting, allar máltíðir, glaðningur við komu, kakó og öll dagskrá og kennsla.

Nánar um kennarann:
Huld Hafliðadóttir er jógakennari, gongspilari og markþjálfi og hefur kennt jóga á Húsavík og í nærsveitum sl. 15 ár, í hvers kyns formi. Allt frá jóga fyrir leikskólabörn yfir í hádegisjóga á skrifstofu sveitarfélagsins.
Undanfarin misseri hefur Huld lagt áherslu á hugleiðslu og slökun auk þess að vera mjög umhugað um að bjóða rými fyrir sjálfsmildi, sjálfsvitund og meðvitund og stofnaði hún Spirit North í þeim tilgangi árið 2018. Hún hefur leitt fjölda viðburða fyrir konur og leggur áherslu á að fólk gefi sér tíma og rými til einfaldlega til að vera og tengja inn á við, í heimi sem sífellt kallar á tengingu út á við.

Fullt var á retreat-ið sl. tvö ár og eru eftirfarandi ummæli eftir þátttakendur þar:

“Ein besta gjöf sem ég hef gefið sjálfri mér. Engin krafa um að vera að gera eitthvað annað en það sem mig langaði til að gera.”

– “Helgin gaf mér rými. Rými fyrir sjálfskoðun og sjálfsmildi. Rými til að losa um einhverja spennu sem ég vissi ekki að þyrfti að losa um og þ.a.l fann ég ró í sjálfri mér sem ég hef ekki fundið lengi. Ég mun seint gleyma þessari upplifun og þeim djúpstæðu áhrifum sem hún hafði á mig.”

“Ég náði að tengjast mér aftur, finna til þakklætis fyrir fólkið mitt. Finna kærleikan innra með mér og það sem skiptir mig máli. Ég náði mikilli slökun og kem endurnærð tilbaka.”

“Þessi staður er draumi líkastur – Þvílík Paradís. Þessar konur og Huld – Hefði ekki getað verið betri hópur af ólíkum konum. Ég fann fyrir svo miklum kærleik ❤️ ”

“Þessi helgi minnti mig á að slaka á. Ekki bara fækka mögulega verkefnum heldur hægja á huga og hjarta, og leyfa mér að njóta þess sem á vegi mínum verður.”

“Hvíld, slökun, upplifði kærleika og gleði. Gaf mér frið frá daglegu amstri.”

Verð:

kr. 77.000*

*Velkomið að skipta greiðslum.

Hægt að skipta greiðslum í tvær 38.500 eða þrjár 25.700 greiðslur – hafið samband fyrir þann möguleika.

Ath. til að taka þarf pláss þarf að greiða staðfestingargjald, að lágmarki einn þriðja af heildarverði (25.700 kr) – einnig má greiða að fullu við bókun. 

77.000 kr.

10 in stock