
Spáð í spilin: Kynntu þér töfra spáspila 🔮🪶
Á þessu námskeiði skoðum við ólík spáspil (e. oracle cards) og fræðumst um hvernig þau geta nýst í daglegu lífi: sem leiðarvísar, til að auðvelda ákvarðanatökur og sem tæki til að efla tengingu við eigið innsæi.
Spáspil hafa verið notuð í aldaraðir í ólíkum menningarheimum og tekið á sig fjölbreytt form og merkingu. Í dag eru þau nýtt á margvíslegan og persónulegan hátt – sem verkfæri til sjálfsræktar, innsæis og persónulegrar leiðsagnar.
Námskeiðið hentar vel þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi spáspila, sem og þeim sem vilja dýpka tenginguna við eigin innri rödd og efla trú á eigið innsæi.
Innifalið í námskeiði:
🍀 Þinn eigin spáspilastokkur (valinn í skráningarferli)
🍀 Te, kaffi og ávextir
🍀 Leiðsagnahefti á íslensku
Dagsetning: mánudagskvöldið 30. júní
Tími: kl. 20 – 22
Staðsetning: nánar auglýst síðar
Verð: 11.500 (spáspilastokkur að verðmæti 6.500 kr innifalin)
Til að staðfesta pláss og stokk, þarf að greiða við skráningu (með milifærslu eða reiðufé) – þar sem ég mun panta stokkana fyrirfram til að hafa þá á staðnum á námskeiðinu.
Mikilvægt að velja stokk hér fyrst.
Síðasti skráningardagur er mánudagur 23. júní.
11.500 kr.
Out of stock