Stakur tími: Jóga Nidra með Huld
Þarft þú á slökun og eftirgjöf að halda?
Ert þú uppfull/ur af streitu?
Eða viltu kannski bara gefa þér nærandi gjöf?
Þá gæti þetta námskeið verið fyrir þig.
Jóga nidra, sem merkir “jógískur svefn” er leidd djúðslökun sem byggir á kerfisbundinni röð líkamsvitundar- og öndunaræfinga. Jóga nidra hefur djúpstæð áhrif til heilunar, losar um streitu, bætir svefn, umbreytir neikvæðum hugsanamynstrum og skapar jafnvægi. Talið er að um 30 mínútna iðkun af jóga nidra sé á við 4 klst svefn. Í jóga nidra er boðið upp á að setja sér persónulegan ásetning (Sankalpa) sem hjálpar til við að losa um gömul og rótgróin hugsana- og hegðunarmynstur.
Rannsóknir á jóga nidra sýna fram á ótvíræðan ávinning, hvað varðar slökun, hugarró en ekki síður ásetning. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á jákvæð áhrif á ýmsa lífeðlisfræðilega og sálfræðilega kvilla eins og svefnleysi, fíkni- og ávanahegðun, langvinna sjúkdóma, verkjameðferðir, meðgöngu, öldrunarsjúkdóma, astma auk hjarta- og æðasjúkdóma (t.d. Satyananda Saraswati 2009).
Jóga nidra er mjög áhrifarík iðkun og það eina sem þú þarft að gera er að hlusta, slaka og gefa eftir.
Stakir tímari í boði mánudaga kl. 19:30 (ath. ekki er tími mánudaginn 19. janúar)
Staðsetning: FSH, gengið inn um kennarainngang og niður í kjallara
Hver tími er um 60 mínútur
Kennari: Huld Hafliða
Teppi, dýnur og púðar á staðnum en velkomið að hafa með sér aukapúða/teppi fyrir aukin þægindi).
2.700 kr.
3 in stock