Heilandi dagar á Húsavík

Heilandi dagar á Húsavík

 

Heilandi dagar á Húsavík eru hugmynd tveggja æskuvinkvenna frá Húsavík, Huldar Hafliðadóttir og Hörpu Fannar Sigurjónsdóttur, um að bjóða Húsvíkingum og nærsveitungum upp á heilandi dagskrá yfir nokkra daga ár hvert.

Heilandi dagar 2020 falla niður vegna Covid-19. Fylgist með fyrir dagskrá 2021.

Heilandi dagar 2019 voru haldnir dagana 25. – 28. apríl 

Fyrir viðburðunum stóðu:
Huld Hafliðadóttir jógakennari og stofnandi Spirit North, Húsavík,
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir lögfræðingur, tónlistarkona og heimildarmyndagerðarkona frá Kaldbak,
Guðrún Birna le Sage, markþjálfi, RIE móðir og stofnandi AhaMoment,
Elín Ásbjarnardóttir Yin jógakennari og söngkona
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, jógakennari, gongheilari og stofnandi Óms, jóga og gongseturs.
 

DAGSKRÁ 2019

 
Fimmtudagur 25. apríl kl. 16 – 17
Gongslökun með 8 gongum í Sjóböðunum með Arnbjörgu og Huld. Aðgangseyrir 2500 kr. (greiða þarf sérstaklega í sjóböðin).
Bein skráning á viðburð
 
Föstudagur 26. apríl kl. 17 – 19
Úti-jóga, öndun og kakó með Arnóri Sveinssyni.
Aðgangseyrir 3500 kr. Ath. Tilboð kr. 3.000
Bein skráning á viðburð
 
Laugardagur 27. apríl kl. 10 – 12
Máttur athyglinnar & Gló Motion heilræktarkerfið – inngangur með Guðrúnu Birnu le Sage.
Aðgangseyrir 2000 kr. Ath. Tilboð kr. 1.700
Bein skráning á viðburð
 
Laugardagur 27. apríl kl. 15 – 17
Yin jóga með Elínu Ásbjarnardóttur.
Aðgangseyrir 2000 kr. Ath. Tilboð kr. 1.700
Bein skráning á viðburð
 
Laugardagur 27. apríl kl. 20 – 21
Lifandi möntrusöngur með Hörpu Fönn, Huld, Elínu, Arnóri og Guðrúnu Birnu í sal Hvalasafnsins.
Aðgangseyrir 3500 kr. Ath. Tilboð kr. 2.800
Bein skráning á viðburð
 
Sunnudagur 28. apríl. kl. 10 – 12:30
Yin jóga og Jóga Nidra djúpslökun með Elínu og Huld. 

 Ath. Tilboð kr. 2.200

 

Tilboð verður á sérstökum heilandi matseðli á Lókal á meðan á Heilandi dögum stendur og heilandi réttum af matseðli á Naustinu og Fosshótel Húsavík.
Við hvetjum gesti til að nýta sér tilboðin og næra sig á heilnæman hátt.

Hlökkum til að njóta með ykkur.

Um Heilandi daga:
Heilandi dagar urðu til vorið 2018 í kjölfar samvinnu nokkurra kvenna. Úr varð nokkurra daga dagskrá þar sem boðið var upp á fjölbreytta tímar af uppbyggjandi jóga, gongslökun, möntruviðburðum og kakóseremóníu á Húsavík fyrir Húsvíkinga og nærsveitunga.

Fyrir viðburðunum stóðu Huld Hafliðadóttir jógakennari frá Húsavík, Harpa Fönn Sigurjónsdóttir lögfræðingur, tónlistarkona og heimildarmyndagerðarkona frá Kaldbak, Harpa Barkardóttir möntrusöngkona og jógakennari, tónlistarkonan Kristín Björk Kristjánsdóttir (Kira Kira), jógakennarinn og brottflutta Húsavíkurmærin Elín Ásbjarnardóttir og jógakennararnir og eigendur Andagiftar súkkulaðiseturs í Reykjavík: Lára Rúnarsdóttir og Tinna Sverrisdóttir.

Viðburðirnir voru öllum opnir og hægt að mæta á staka viðburði yfir dagana eða kaupa passa fyrir alla viðburðina.

 

DAGSKRÁ 2018

Laugardagur 28. apríl kl. 16 – 19 Súkkulaðiseremónía, möntrur og tónheilun með Tinnu Sverrisdóttur og Láru Rúnarsdóttur frá Andagift súkkulaðisetri. Aðgangseyrir 4500 kr. (súkkulaði innifalið).

Sunnudagur 29. apríl kl. 11-12.30 Yin Yóga með Elínu Ásbjarnardóttur Aðgangseyrir 2000 kr.

Sunnudagur 29. apríl kl. 20 – 21.30 Endurnærandi möntrukvöld með 7 tónlistarkonum og jógakennurum. Harpa Barkardóttir möntrusöngkona leiðir stundina. Aðgangseyrir 3500 kr.

Mánudagur 30. apríl kl. 12 – 13 Gong- og tónheilun með Huld og Hörpu. Aðgangseyrir 2000 kr.

Mánudagur 30. apríl kl. 18 – 19:30 Kundalini jóga með Huld Aðgangseyrir 2000 kr.

Þriðjudagur 1. maí kl. 11 – 12 Ljósríkt spjall um vakandi umgengni við sköpunarkraftinn okkar, með tónlistarkonunni Kiru Kiru. Aðgangseyrir 1000 kr.